G. Bryndís Jónsdóttir :)
Myndir ;)
Minningar ;*
13.12.2007 22:59:46 / bryndis

einmitt

www.myspace.com/bryndis_85

 

nenni ekki að vera með svona blog síðu þannig það er fínt að vera með sona myspace þar sem mar þarf ekki að blogga ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 18:37:40 / bryndis

smá :D

ég nenni ekki að blogga mikið þannig ég ætla að setja bara inn nokkra punkta um það sem hefur verið að gerast :D

  • komin suður náttla svaka stuð
  • byrjuð að vinna sem skólaliði í Hraunvallarskóla sem er grunnskóli í Hfj
  • Byrjuð á fullu í handboltanum, lentum í 2 á RVK open
  • fæ íbúð í næstu viku 8) sem er geggjað
  • er að fara norður næstu helgi að keppa á einhverju móti
  • fór í keilu í gær með Önnu Dís, Narfa og Valgerði og ég meirað segja vann einu sinni 8) újééé
  • verð að fara að taka mig á í þessum bloggmálum :P ekki alveg að gera sig hérna :$
  • Afmælið hjá Ernu var svaka stuð ;D hendi kannski inn myndum af því sona þegar maður er að fara að nenna að eyða löngum tíma í það þar sem það tekur endalausan tíma að setja inn myndir :|
  • Ásdís greyið fékk glerbrot í löppina um síðustu helgi en er samt allt að komast í lag :D

Það er ekkert mikið að gerast samt núna annað en að vera að vinna og í handboltanum. það er samt alveg ágætt, vinnutíminn minn er frá 7:30-15:40 þannig maður þarf að fara frekar snemma að sofa. það er mjög gaman í vinnunni ´þó það kemur nú fyrir að einn og einn krakki þykjast svo töff og eru með smá stæla. Gelgjan alveg að gera sig hjá sumum ;) hehe en þessu litlu eru so miklar dúllur.

Svo eru bara 2 morgunæfingar eftir sem ég get ekki beðið eftir að vera búin með en það eru útihlaup kl 6:20 á morgnanna og shitt ég er að kvarta en hvað þá þær sem hafa verið að gera þetta í allt sumar:S úff 

mamma kemur á morgun með smá af dótinu mínu  ískáp,  hillur og eitthvað fleira :D það verður so geggt að vera bara með sína eigin íbúð og ekkert vesen eða neitt. Kaupa í matinn og  sona ;)  Það er samt bara eitt sem vantar og það er að ég þarf svo að kaupa mér BÍL það erömurlegt að vera ekki með bíl sérstaklega þegar marhh þarf að fara eitthvað og tala nú ekki um þegar við erum að fara að keppa einhversstaðar í Rvk, það er so ömurlegt að vera alltaf að sníkja sér far :P vonandi finnur marhh einhvern flottan :D

Jóhanna Elín fór svo bara norður í stað þess að koma í bæinn og hitta mann :S hmm Jóhanna eins gott að þú farir ´þá að koma bráðum, en er samt ekki bara gaman í skólanum....? ég held það, þó það sé nú asskoti gott að vera ekki í skóla enginn lærdómur engin próf og þannig :P soldið þægilegt..... Anna Dís og Narfi komu í gær :D alltaf gaman að hitta þau og tala nú ekki um að rústa þeim í keilu:$ hmm hehe Ég þarf so að fara að heimsækja þau bráðum :) svona þegar marhh er í fríi sem verður kannski í nóvemeber eða eitthvað :!: 

en ég ákvað að blogga nú smá fyrir Jóhönnu svo hún getur lesið það þegar henni leiðist í tíma ;) ég ætla að fara að tjékka hvort ég get sett myndir inn á þetta ;D

--Bryndís--

img323/8247/p8260020de2.jpg

Ég, Ásdís, Ragna Lóa og Erna afmælisbarn :*


» 16 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 14:07:10 / bryndis

Sumarið er að verða búið :(

Það er orðið soldið langt síðan ég bloggaði.

Við mamma fórum suður síðustu helgi í afmæli til Kristrúnar litlu frænku en hún varð 12 ára 25.júlí :D. Við gistum hjá bróðir mömmu og fjölskyldu. Við heimsóttum Sunnu og Svölu mömmu hennar var að láta Sunnu hafa þessar fínu myndir frá Húsdýragarðarferðinni okkar ;) hehe svaka stuð :D fékk svo líka slatta af nýjum lögum hjá henni :D takk fyrir mig sætust ;*

Þetta var bara fín ferð alltaf gaman að komast í bæinn og hitta alla.

Þetta sumar er búið að vera svo fljótt að líða marhh úff það er að koma verslunarmannahelgin og þá er bara sumarið búið. Það verður Landsmót á Laugum um þá helgi og verður maður að vera að vinna þar eitthvað smá þar sem maður er í fríi í vinnunni. Anna Dís og Narfi eru að fara að koma á fimmtudaginn :D:D þau ætla að gista í tjaldi á Laugum til sunnudags og ætla svo að gista hjá mér mán til mið :D vona nú að þau fái gott veður í tjaldinu sínu ;) það væri samt soldið fyndið að þau myndu nú bara fá rigningu ;) hahah

Ég er að fara á morgun að hitta Jóhönnu við ætlum að reyna að finna bæði brúðkaupsgjöf og skírnargjöf :D við finnum eitthvað flott....  verið líka að sjá nýja bílinn marhh algjör kaggi víst.

 

Ég ætla að halda áfram að vinna núna J svona til tilbreytingar hahaha ;) en já bensínsjálfsalinn hér er búin að vera í ruglinu þannig ég tók bensín áðan á bílinn sem var alveg tómur og það kostaði alveg 635 kr að fylla hann sem er náttla snilld. En þá kostaði bensínlíterinn ekki nema 3,2 krónur ;) en það er búið að loka núna því miður L 

Svo styttist í að maður flytji suður :D það verður ekkert smá gaman svo er ásdís að koma heim eftir 2 vikur get ekki beðið  ;D  en ég er farin

» 11 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 11:33:11 / bryndis

picturtrail er so SLOW.....

ég ætla að skrifa nokkrar línur á meðan ég er að bíða eftir að þessar myndir komist einhverntíma á netið, tekur ekkert smá langan tíma..... er að setja á picturtrail og það er so slow að það er varla að mar nenni þessu :S en maður lætur sig hafa það :D Jóhanna Elín er búin að bíða soldið lengi eftir myndunum frá 17 júní þó þær séu nú ekki margar. Svo kannski skellir maður einhverjum myndum frá Krít svona fyrst maður er að þessu :D eða það fer reyndar allt eftir því hversu lengi þetta blessaða dæmi ætlar að vera, ég hef ekki alveg þolinmæði í sona :lol: hehe

Ég er bara í vinnunni núna, svo er ég í fríi á morgun og hinn :D ohh get ekki beðið eftir að sofa út. Ég fór inn á Ak á laugardaginn og fór með pakkann hennar Jóhönnu til hennar í vinnuna, hún er að vinna í sundlauginni á Ak og ég hafði bara aldrei áður komið í hana, eins og maður er duglegur að mæta í sund.... bara skil þetta ekki. En þetta er alveg fínasta sundlaug og aldrei að vita nema maður skellir sér einhverntima í hana :)

ég ætla að tjékka á þessum myndum hvort þær séu ekki að verða tilbúnar.....

jei það tókst myndirnar eru komnar :D

--Bryndís--


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 11:16:27 / bryndis

úff

úff það er svo langt síðan ég hef bloggað að ég veit eiginlega ekkert hvar ég á að byrja, við ásdís erum í vinnunni núna :D ekkert smá duglegar, fullt af útlendingum og sona sem kunna ekkert í ensku held það sé ekkert sem er meira pirrandi en þegar fólk kemur til íslands og kann ekkert í ensku og ætlast til að við kunnum bara frönsku og þýsku... hva er það 8| óþolandi

Seinasta laugardag var 17 júní og var ég þá með útskriftarveislu, hún gekk bara mjög vel. Um kvöldið fórum við svo ég, ásdís og sunna á Akureyri það var ekkert smá mikið af fólki. Jóhanna Elín kom með okkur á djammið :D ekkert smá gaman að hitta hana. Svo hittum við Pálma, Andra og Sigga sem eru litlu stóru frændur mínir, algjörir töffarar og ótrúlega sætir :* enda skildir mér :) hehe ekkert smá gaman að hitta þá. þeir eiga heima á Akranesi þannig marhh sér þá alltof sjaldan :/ Það var svoldið um slagsmál klikkað fólk....já ég nenni ekki að skrifa meira um þetta annað en að það var mjög gaman.

hey já það var mjög gaman á Krít, nenni ekki að skrifa um það núna geri það einhverntíma seinna ;) ef ég nenni því þá ..... jú jú mar verður að gera það..´. en ég ætla að halda áfram að vinna.....

hérna erum við pálmi og so einhver sem tróð sér inná myndina ;)

Ég og Pálmi :D

ohh hvað við erum sæt ;) hahahaha

Ég og Andri Már á Kaffi Karólínu :D

Sunna :D

ásdís ég og sunna ;*

Jóhanna Elín og ég

ásdís sæta ;*


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 09:36:01 / bryndis

...

Prófin fara að byrja á Laugardaginn, við erum ekkert smá lengi í skólanum það eru flestir búnir núna þegar við erum ekki einu sinnu byrjuð. ég er ekki búin í prófum fyrr en 19 maí og svo er útskriftin 25 maí :) ég fer í 5 próf :S en það verður svo gaman þegar þetta er búið. Við förum svo út til Krítar 21 kvikindi 29 maí, það verður bara snilld.

Eftir prófin eða annaðhvort 19 eða 20 þá förum við suður því Fríða er loksins búin að ákveða að skíra litlu dúlluna :D svo er málið að reyna að finna sér einhver föt fyrir útskriftina....... Svo í gær gerðist eitt frábært :D:D Anita og Raggi eignuðust aðra stelpu, hún var mjög stór eða um 19 merkur og 57 cm. Við ætlum að skella okkur á Akureyri eftir skóla og kíkja á þær mæðgur. þurfum að finna einhverja sætan pakka fyrir þær :D get ekki beðið að sjá hana

Á laugardaginn seinasta þá fórum við á Sjallann alveg í annað skipti marhh :P hehe Það voru gjörsamlega allir lauganemar á Sjallanum held að það hafi ekki verið neinn einasti á fjalli þetta kvöld, Páll Óskar var dj og hann er náttla algjör snilli þannig það vantaði ekki stuðið hjá honum. ég nenni ekki að hafa þetta lengra, kannski að marhh ætti að reyna að læra eitthvað :P eða ekki.....

--Bryndís--

Stal svona spurningar dæmi hjá Jóhönnu :D hehe

  1. Hversu vel þekkir þú mig?
  2. Hef ég sært þig?
  3. Við hvað á ég eftir að starfa í framtíðinni?
  4. Hvað hata ég mest?
  5. Hvað elska ég mest?
  6. Hvaða litur fer mér best?
  7. Fallegasti líkamsparturinn minn?
  8. er ég trúuð?
  9. Áhugamál mín?
  10. Hvað finnst mér fyndnast?
  11. Ég er _______ manneskja sem þú hefur kynnst!
  12. Ef þú myndir mega spyrja mig að einu, hver væri spurningin?
  13. þrjú - fimm orð sem lýsa mér best0

endilega tjáið ykkurv :haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 00:00:29 / bryndis

RVK ferðin :D

Reykjavíkurferðin okkar á íþróttabrautinni var mjög skemmtileg :D við lögðum af stað suður á miðvikudeginum eftir skóla eða um 16:30. Jóhanna Elín var á bíl þannig ég, Anna Dís, Arna Benný og Fanney fórum með henni og skemmtum við okkur mjög vel, ég held ég hafi bara aldrei verið svona fljót suður þetta var enga stund að líða :D sem er náttla bara snilld þar sem það er ekkert skemmtilegast í heimi að keyra þarna á milli en jájá nóg um það :P hehe. Við gistum í UMFÍ húsi í RVK og komum við þangað um 23:00 miðvikudagskvöldið, við gerðum ekkert mikið annað þann dag nema bara fara að sofa.

Fimmtudagur 27.apríl

vöknuðum kl. 08:30 og fengum okkur morgunmat og sona gaman, næst á dagskrá var svo að fara á fyrirlestur um UMFÍ sem var í sama húsi og við gistum þannig það var ekki langt að fara. UMFÍ kallinn talaði bara um starfsemi UMFÍ og þannig og það var eitt sem mér fannst mjög áhugavert en það var lýðháskólinn í Danmörku, ég held það sé alveg snilld að fara þangað maður þarf ekki að læra neitt voða mikið bóklegt heldur er þetta eilla allt verklegt þannig maður er bara að prufa alls konar íþróttir sem er náttla ekkert nema bara snilld! :D

Eftir UMFÍ fórum við að skoða laugardalshöllina nýju, það lítur bara allt mjög vel út, fórum svo í hádegismat á pizza hut og fengum þar mjög góðar pizzur og má segja að sumir borðuðu aðeins meira en aðrir :haha: nefni engin nöfn er það nokkuð Jóhanna á ég nokkuð að gera það.... ?;) hehe.... Þegar við vorum búin að borða nóg lögðum við af stað í akademíuna í keflavík, þetta er bara hinn ágætasti skóli allt mjög flott og vel gert, get samt ekki alveg sagt að mig langi að fara þangað þó þetta sé nú örugglega ágætis skóli. Við vorum þarna í smá tíma fengum svo að fara í salinn í íþróttir sem var stuð, plataði nokkra með mér í handbolta eða bara skjóta á mark, mar er kominn með smá fráhvarfseinkenni :$ alltaf gaman að láta dúndra í sig nokkrum boltum :haha:

Um kvöldið á fimmtudeginum þá fórum við, ég, Jóhanna Elín, Arna Benný, Hulda og Heiða á handboltaleik en fyrir leikinn þá fórum við og kíktum í kirkjugarðinn aðeins til að kíkja á hann Egill :cry: sakna hans so mikið :cry::cry: en ætla ekki að hugsa um það núna.... tala um ferðina :^):)

Haukar – Valur.... þetta var ágætur leikur nema það að Haukar töpuðu :S gengur bara betur næst :D eftir leikinn fórum við svo í keilu og tókum einn leik sem btw ég vann :evil: úje, ég og jóhanna tókum svo einn leik í pool og þar sem ég er svo rosalega góð í því þá skaut ég hvítu kúlunni bara 7 sinnum oní og ekki nóg með það heldur náði ég líka að skjóta henni einu sinni af borðinu, tveimur vitlausum kúlum oní og að lokum til að toppa það allt þá bara fór svarta kúlan líka oní :P ohh mar er svo góður í þessu... hmm.... eftir þetta allt saman þá fórum við bara í UMFÍ að sofa.

Föstudagur 28.apríl

Vöknuðum kl. 08:15 og byrjuðum náttla á því að fá okkur morgunmat, fórum svo í Laugardalinn til að kíkja á KSÍ fólkið, fengum prins póló og kók sem er alltaf gaman. Fórum svo í Lauga líkamsræktarstöðina, skoðuðum hana mjög fínn staður endalaust af tækjum held samt að þetta sé einum of stórt til að maður myndi nenna að fara þangað sem er náttla bara mín skoðun ;) það er nú so slatta mikið af fólki þarna, það var maður sem fór með okkur um þetta og sagði okkur frá þessu m.a. þá var hann að tala um að þegar þetta allt var byggt þá þyrftu þeir að selja um 7000-8000 kort til að þetta myndi ganga, það gekk nú heldur betur þar sem þeir eru með um 13000 iðkendur. Eftir Lauga þá lögðum við af stað á Laugarvatn. Leist mjög vel á þann skóla held það sé mjög gaman að vera þarna, námið þarna tekur um 5 ár ég held að það sé málið þegar mar fer aftur í skóla þ.e.a.s. ef maður kemst inn :P annars er bara málið að sækja um aftur ;) hehe... Við vorum svo 5 eftir og skelltum okkur í sund það voru ég, Anna Dís, Heiddi, Villi og Raggi fórum svo á Hróa Hött á Selfossi þegar við vorum á leiðinni heim fengum ágætan mat ekkert alltof góða. Hey já svo hitti ég Ernu Halldórs stelpa sem var með mér í handbolta, fékk smá fréttir af boltanum og sona J verð nú að virðurkenna að manni langar svoldið aftur :$ en það kemur bara allt í ljós.

Um kvöldið fórum við í bíó á Scary movie 4, fór með Önnu Dís, Villa, Ragga og Heiðu. Þessi mynd var samt ekkert alltof góð, svona eitt og eitt atriði sem var fyndið reyndar aðeins meiri hjá Önnu Dís og Ragga þar sem þau eru svo mikil kvikindi, mér finnst til dæmis ekki fyndið þegar það er verið að sparka í hunda eða þegar það er kviknað í þeim en veit samt að sumum finnst það alveg frábært :evil: eftir bíóið fórum við bara í UMFÍ að sofa.

Laugardagur 29.apríl.

Það er náttla það fyrsta sem er sagt um þennan dag að hún Ásdís mín átti afmæli og varð 21 árs :D:D því miður komst ég ekki í það L ömurlegt... við höldum bara annað afmæli í sumar þegar við förum út. Það verður geggjað..... :D en já ferðin við vöknuðum um 9:30 vó fengum bara að sofa út, fórum í Sporthúsið í kópavogi ekkert smá flott hús, þó það sé kannski minna en Laugar þá líst mér betur á það, það er svo sniðugt kerfið sem þeir eru með, fengum líka gefins brúsa og miða sem gildir í 5 skipti fyrir 2 í skvass, hef aldrei prufað þannig það verður bara stuð. Eftir sporthúsið þá fórum við heim til Villa þar sem mamma hans var búin að elda mat fyrir okkur J fengum svo skúffuköku í eftirmat sem var ekkert smá góð, held ég hafi bara aldrei smakkað eins góða skúffuköku og já omg systir Villa átti svo sætan naggrís hann var algjört krútt og nei Anna Dís er alltaf svo góð að hún sagði að þetta væri eins og rotta nema það vantaði bara skottið sem er ekki satt rottur eru ógeð!! Og já ekki nóg um það heldur þá voru Raggi og Anita líka sammála, þau hafa greinilega ekki séð naggrís allavega ekki þennan því hann var æði krútt;) hehe..... eftir heimsóknina til Villa þá lögðum við af stað heim. Man ekki hvað klukkan var þegar við komum heim.

Þetta var svona “smá” um ferðina okkar þessa frábæru ferð.

Ég ætla bara að láta þetta duga i bili J

 

 

--Bryndís--



 

 

p.s ég var aldrei pirruð í ferðinni 8) hehe og vó held ég hafi aldrei bloggað sona mikið




» 7 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 10:04:50 / bryndis

Gleðilegt sumar :D

Þar sem fyrsti sumardagurinn er í dag ætti þá þessi snjór ekki að vera farinn... hmm smá pæling sko, það er ekkert gaman að hafa snjó þegar sumarið er að koma, það er bara ekkert að gera sig ;) hehe.

á þriðjudaginn fór ég með Anitu inná Akureyri, kíktum í búðir og svona skemmtilegt ;) ég fékk að fara með henni í skoðun og fékk að heyra hjartsláttinn í litla barninu :haha: ekkert smá krúttlegt, það fer bara alveg að koma að því að litli eða litla komi í heiminn, það verður stuð :P ég var að passa Salbjörgu í gær og hún er so mikið yndi þetta barn að það er ekki fyndið. Ég var að sýna henni sætan hund í tv og þá segir hún allt í einu "hundurinn er sætari en ég" ;) það var náttla ekkert satt, en það er svo fyndið hvað henni dettur í hug.

ég er að vinna núna og klukkan er bara 10:00 sem þýðir að það eru einungis 8 klst eftir, allt að koma ;) svo er síðasti þátturinn af Nip/tuk í kvöld, mar verður að fylgjast með honum. ég hef eilla ekkert að segja :P skólinn er að byrja á mánudaginn, það verður fínt, það er líka svo stutt eftir. við förum svo í skólann á mán-mið svo förum við suður íþróttabrautin að skoða alls konar dót m.a. Laugarvatn og akademíuna svona til að sjá hvort manni líst betur á þegar kemur að því að fara aftur í skóla:) það verður bara gaman :D en ég nenni ekki að skrifa meir núna enda gerist ekki mikið maður er bara að vinna og hangsa ;) hehe

--Bryndís--


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 10:48:00 / bryndis

Gleðilega páska :D

úff ég veit ekki alveg hvar á að byrja það er so langt síðan ég bloggaði..8| ég er búin að vera fyrir sunnan núna undanfarna 10 daga, það var mjög gaman. Var hjá Helga og Hönnu mest allan tímann :D þar sem ég er í vinnunni núna og ekki mikið að gera í augnablikinu þá ætla ég að segja frá suðurferðinni :)

við lögðum af stað suður miðvikudaginn 5 apríl, ég, anna dís, narfi og villi. Við vorum svo gáfuð að fara af stað á miðvikudeginum í stað þess að fara á föstudeginum en þá byrjaði páskafríið þannig við fengum 2 daga lengur en hinir sem er bara töff ;) hehe..... en ferðin suður var ekkert svo skemmtileg, úff það var so leiðinlegt veður. held við vorum í sona 9 klst á leiðinni með c.a. 15-20 min stoppi.. mér finnst það soldið lengi. ég keyrði fyrripartinn eða á Laugarbakka og Narfi keyrði í borgarnes. ég nenni nú ekki að vera að segja mikið frá þessum part ;) hehe. látum bara nægja að segja að það var mjög leiðinlegt veður.....

Á fimmtudeginum var ég með Gunnu Dóru heima því hún var lasin :^) krissa kom so heim og vorum við þrjár bara eitthvað að dandalast um klukkan 5 fór ég og náði í sunnu til að plata hana með mér í kringluna :D fórum náttla í Body shop að hitta hana Ásdísi mína, hún var í vinnunni þessari æðislegri vinnu8| við sunna fórum svo auðvitað á KFC baby omg hva það var gott, fengum okkur twister namm:haha: þoli ekki að það er ekki KFC á Akureyri. þegar við vorum búnar á KFC fórum við heim til Sunnu, hitta hina fjölskyldumeðlimina ;)

Á föstudeginum var ég bara hjá helga og hönnu, gerðum okkur pizzur og sona gaman :D horfðum á Idolið, rosa stuð :D man ekki meir hvað ég gerði þennan dag, það er soldið langt síðan hann var ;)

Á laugardeginum vaknaði ég snemma, ekkert smá dugleg ;) fór til Fríðu á Kjalarnes til að tjékka á nýja fjölskyldumeðliminum :D hún var so lítil að ég þorði varla að halda á henni :o en gerði það nú samt, hún er ekkert smá sæt, bara smækkuð mynd af systir sinni. Ég var hjá þeim alveg til sona 18:00 það var mjög gaman, gaman að hitta þau ;* eftir það þá fór ég til Ásdísar, við tókum okkur smá til og fórum svo til Ernu og vorum hjá henni í smá tíma, fórum í Singstar og fleira skemmtilegt ;) hehe, Sólveig kom svo líka og Drífa og Eddi kærastinn hennar, alltof langt síðan ég hitti þau... :P Við vorum hjá Ernu til eitthvað klukkan man ekki alveg, fórum svo á Glaumbar og vorum þar til eitthvað 4:30 þá ákváðum við að skella okkur heim, en ég og ásdís förum nú aldrei heim af djamminu án þess að koma við í 10-11, til að kaupa okkur pizzur ;) keyptum okkur eina stóra og svo 2 litlar sem við ætluðum að borða meðan hin væri í ofninum, omg hvað við erum sniðugar :lol: við gerum okkur alltaf fullt af mat en borðum hann svo aldrei... hvað er það:$ við ásdís fundum svo geggjaða flotta íbúð í Slóveniju sem er hægt að leigja bara í nokkurn tíma, við erum að reyna að fá krakkana með okkur út ;) það hafa allir gott að því að kíkja aðeins til Sloveniju hmm ha ;) hehe

Á sunnudeginum fór ég með helga og hönnu og stelpunum í IKEA, stelpurnar voru að fá ný rúm :D ekkert smá flott, svo því þær voru búnar að vera góðar so lengi þá fórum við á McDonanlds (það er samt enginn KFC ;) ) fengum okkur að borða þar og fórum svo í Hfj. ég fór svo í mat til Pabba um kvöldið.

þá eru bara nokkrir dagar eftir af ferðinni minni :S ég ætlaði að fara á afmælishátíð Hauka sem var á miðvikudaginn 12 apríl en nei ég varð að verða lasin :^) fékk hita í fyrsta skipti og fleira skemmtilegt :S þannig ég komst ekki á það, þetta er samt so týpískt ég eitthvað, þegar ég vil fara eitthvað þá bara niii, fæ mér bara hita....hvað var það... svo var ég bara með hita í einn dag, vei... :evil: ömurlegt. Svo á föstudaginn fór ég í Skorradal til pabba og fjölskyldu í sumarbústað :) á laugardeginum komu svo amma og afi, og bræður pabba mjög gaman að hitta þau öll. svo í gær páskadag lagði ég af stað aftur norður, kom hingað um 9, nennti ekki að stoppa neinstaðar á leiðinni dreif mig bara norður. það er ágætt að vera komin heim :D svo í dag er ég bara að vinna til 18:00 og sé til hvort ég kíki á Lauga eftir það, kemur bara í ljós,

ætla að láta þetta duga í bili :) skólinn fer svo að byrja aftur núna 24 apríl

--Bryndís--


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 22:58:56 / bryndis

Ný frænka :D:D

Það er kannski kominn tími á smá blogg hérna :D

Ég ætla að byrja á að segja að ég var að eignast litla frænku 19.mars :D:D hlakka ekkert smá til að fara suður til að sjá hana. Hún er víst rosa sæt. Það er ekki alltaf sem lítil börn eru sæt, þau verða það yfirleitt ekki fyrr en nokkra mánaða, nema kannski í eintsökum tilfellum, en það er mín skoðun :P veit að mörgum finnast nýfædd börn vera sæt. En ég er viss um að þessi stelpa sé mjög sæt ;) hehe.... get ekki beðið :)

Ég er loksins búin að ákveða hvernig þetta á að vera um páskana 8) finally, en ég ætla bara að keyra suður 7. apríl og býst við því að Anna Dís og Narfi koma með enda er ekkert skemmtilegt að keyra bara einn :P Ég ætla svo að vera fyrir sunnan þar til svona á bilinu 16 - 18 apríl kemur bara allt í ljós :D við fáum svo langt páskafrí. ohh mig hlakkar svo til að ég er að deyja, hitta allt fólkið og svona, hitta Ásdísi :* og hana Sunnu mína :* Ætla að vera fyrstu dagana hjá bróðir mömmu og fjölskyldu, get ekki beðið að hitta elsku litlu sætu frænkur mínar:D það er svo ömurlegt að vera svona langt í burtu frá þeim öllum :cry: sé þau alltof sjaldan. Ætla svo að vera hjá pabba hina dagana og hitta litlu bræður mína, þeir eru algjörir töffarar8) hehe

Þegar páskafríið er búið þá náttla förum við aftur í skólann en svo 26 eða 27 apríl þá ætlum við líklegast íþróttabrautin að kíkja suður og skoða alls konar staði og svona :D förum m.a. að skoða Egilshöll, Laugardalshöll og það sem mér finnst langbest er að við fáum að skoða bæði íþróttaakademíuna í Keflavík og Laugarvatn það verður geggjað að fá að skoða þessa staði því mar veit ekkert hvorn staðinn mar á að velja þegar leiðin liggur aftur í skólann eftir ár frá því að ég klára hér :D veit ekkert hvorn mar á að velja, líst mjög vel á báða staði, þannig það er tilvalið að fá að fara að skoða þá ;)

ohh núna á laugardaginn þurfum við að fara í skólann eins og það sé miðvikudagur :| þannig maður fær ekkert að sofa út þá. En í staðinn fáum við líka lengra páskafrí sem er ágætt.

jahá ég man ekkert hvað ég ætlaði að segja líka :P þannig ég ætla bara að láta þetta duga í bili :D

--Bryndís--

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 23:04:10 / bryndis

Bloggtime ;)

já nú hefur maður eitthvað að segja ;) hehe, finally.

Á miðvikudaginn varð allt rafmagnlaust á slaginu 00:00 og það er bara eitt sem gerist þá... VATNSTRÍÐ, það voru allir á móti tröllabúum. Ég og Anna Dís byrjuðum um sona hálf tólf að fylla vatnsblöðrur, við gerðum alveg slatta. Það var svo allt dimmt að maður sá varla hver var á móti eða með manni í liði :P við vorum með tjörnina (hélt ég) þannig ég var ekkert að spá í krökkunum sem voru þar niðri svo bara allt í einu kemur einn og hellir úr fötu beint á mig:evil: og ég bara varð rennandi blaut :S en það var svo sem í lagi enda er það sem vatnstríð gengur út á er það ekki ? ;) Þetta endaði um 1 eða þá fórum við allavega upp á vist, ég vil meina að við unnum þetta, því í fyrst lagi þegar við komum út þá komu tröllabúar ekki strax út þannig við þurtftum að bíða ýkt lengi so kom alltaf einn og einn en hlupu svo strax aftur inn, þau voru soldið hrædd ;) hehe... en svo þegar við ákváðum að nenna ekki að bíða lengur þá fórum við bara aftur upp á fjall, og já þá gátu allir tröllabúar komið út, vó hugrökk og fóru að syngja "we are the champions". Þau eru soldið svöl ha :$ hehe
þau samt stóðu sig ágætlega eða þessir sem þorðu að hlaupa út með vatnsfötur ;)

Á fimmtudaginn var svo loksins bíó hér á Laugum :D það var sýnd myndin "Fun with Dick and Jane" hún var ágæt. Ég, Anna Dís, Narfi og Ölli vorum í svo asskoti góðum sætum ;) vorum í þessum fína sófa, ekki alltaf sem maður fær að sitja í sófa í bíói. Ölli var með svo skemmtilega vinnu að setja texta á myndina, þurfti alltaf að ýta á takka svo textinn kæmi á skjáinn, frekar skondið 8). Ég var eitthvað að grínast í Ölla með því að segja að það yrði soldið fyndið ef það myndi slökkna á tölvunni hans því þá myndi bara enginn sjá um að setja textann á myndina, og vitir menn talvan varð batteríslaus ;) hahaha, samt ekkert so fyndið eða JÚ hahaha. soldið leiðinleg. :P

Í dag var ég bara í skólanum til kl 14:15 og þar sem við höfðum ekkert að gera yfir daginn þá bara ákváðum við að fá okkur smá göngutúr og löbbuðum í Fosshól því bíllinn minn var á verkstæði, okkur langaði í ís þannig við þurftum bara að labba ;) Ég, Anna Dís, Narfi, Arna Benný og Siggi lögðum af stað frá Laugum klukkan 15:00, þegar við vorum komin smá leið upp fljótsheiðina þá keyrðu Ölli, Kolli og Svenni framhjá, þeir stoppuðu og hann Ölli slóst í för með okkur. Þetta tók okkur ekki nema 2 klukkutíma og 10 mínútur. við vorum svo gjörsamlega ónýt í löppunum þegar við komust loksins á leiðarenda, við stelpurnar hlupum meira að segja seinasta spölin, ýkt duglegar ;) Við nenntum samt ekki að labba til baka, vorum alltöf þreytt til þess. Strákarnir fóru heim til Vidda til að hjálpa honum að mjólka með því skilyrði að hann myndi keyra þeim á Lauga, þá voru þeir búnir að redda sér fari en ekki við :S Kolli kom svo á bíl og fór með strákunum þannig við fengum bílinn og keyrðum til baka, maður er aðeins fljótari að keyra heldur en að labba ;) hehe

Þegar við komum á Lauga þá byrjuðum við á því að sækja bílinn minn á verkstæði, hann var soldið bilaður, bremsuborðinn var bara horfinn og þurfti þá að setja nýjan í. Við fórum á Akureyri á miðvikudaginn þannig við vorum að keyra soldið með eiginlega enga bremsuborða og þá mjög lélegar bremsur, ekki mjög sniðugt. En svo er líka eitthvað að vinstra framdekkinu þannig ef ég keyri hraðar en 90 þá getur dekkið dottið af :o Þannig maður þarf að passa sig smá þar til að það er hægt að laga það.

Ég er búin að skrifa asskoti mikið þannig ég ætla bara að láta þetta nægja ;)

--Bryndís--


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 00:04:35 / bryndis

jahá

ætla að blogga nokkrar línur, nenni ekki að gera mikið...:P það er eiginlega ekkert að segja frá, jóhanna Elín fór heim til sín á laugardaginn til að passa litlu systur sínar :) við anna dís fórum heim til mín og gerðum okkur pasta í matinn sem var mjög gott:D ohh mig langar i pasta núna... nammm ;) hehe

Var á fund áðan útaf utanlandsferðinni og var hún Anna Björt með það á hreinu að það eru 77 dagar þar til við förum út til Krítar :D það verður bara stuð.... Það er ekki mikið eftir af skólanum, þetta verður enga stund að líða :) það er að koma páskafrí :D fáum langt og gott frí, eða frá 7. apríl - 24 apríl, þannig mar verður nú að kíkja aðeins suður á þeim tíma, aðeins að tjékka á pabba gamla ;), og auðvitað hana sunnuog fjölskyldu á klepp :haha::haha: sunna þú veist hva ég meina ;) hehe. hlakka til að hitta ykkur:*

Þegar við komum úr páskafríi þá eru bara eitthvað 2 vikur ettir af skólanum, svo er bara að vinna og vinna í sumar og fara út með Ásdísi minni í ágúst :*:* ohh get ekki beðið, það verður geggjað!

en ég nenni ekki að hafa þetta lengra enda ekki mikið að segja ;) endilega takið þátt í skoðunarkönnuninni ;) það er stundum sem mannig langar ýkt á handboltaæfingu því hérna er bara fótbolti sem er reyndar fínt en mar vill líka smá handbolta :D það er samt orðið soldið síðan mar er kannski bara búinn að gleyma þessu:$ hehe, nei ég veit ekki, mig langar ýkt að fara bara á eina æfingu og þá bara komið, bara svona aðeins til að prufa attur, eða bara plata einhverja með mér niðrí íþrótthús til skjóta í mann nokkrum boltum :klikk: þetta er smá pæling :$

--Bryndís--


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 23:34:54 / bryndis

Tónkvíslin 2006

ohh þetta kemur so asnalega út á blogginu mar þarf alltaf að fara til hliðar til að lesa :P það er ömurlegt, er örugglega þannig útaf myndunum..... æ bara í þetta skipti það er allt í læ

Tónkvíslin var í gær hér á Laugum, hún tókst bara mjög vel:D þetta var engin smá keppni... Það var ekkert smá sem var notað í keppninni, hljóðkerfið var ekkert grín heldur var það sama og notað var á tónleikum hjá Iron Maiden sem haldnir voru einhverntíma :$ hehe, svo var enginn smá ljósabúnaður það var slá með ljósum sem var yfir sviðinu og það kostaði eins og eitt stykki flottur bíll ;) hehe... við erum so merkileg hérna á Laugum að það var tekinn niður ljósabúnaður úr Idolinu til að koma með hingað til okkar ;) við erum svo svöl á því skohh.... enda þýðir ekkert annað en að taka þessu bara með trompi og hafa geggjaða keppni.

img420/3978/p30600934dl.jpg

img412/6141/p30600929qv.jpg

Hérna sést smá hvernig ljósin voru þarna uppi ;) hehe ekkert smá töff og það vantaði ekki áhorfendur, það komu á bilinu 400 - 500 manns, sem er mjög gott

Það voru 20 atriði sem tóku þátt, það voru 11 atriði úr grunnskólum og 9 frá framhaldsskólanum þannig það var verið að halda tvær keppnir í einni. Það var meirað segja sms kosning þannig allir gátu kosið sitt besta lag, og fór þessi kosning fram í Noregi. Stelpurnar úr Stórutjarnarskóla þær Hjördís, Dagrún og Sigga Á. lentu í þriðja sæti í þeirri kosningu, stelpur frá Húsavík voru í öðru og var það ekki so bara hann Villi sem vann sms kosninguna og fékk hann fullt af verðlaunum fyrir það ;) flott mar til hamingju Villi :D Svo voru verðlaun veitt fyrir 1-3 sæti bæði í grunnskólanum og framhaldsskólanum.

Það voru tvo atriði sem lentu í þriðja sæti úr grunnskólunum og annað atriðið voru þær Inda og Gígja með lagið "Island in the Sun" og stelpur úr Stórutjarnarskóla með lagið "Til hamingju Ísland" sem tókst mjög vel hjá þeim.

hér eru þær Gígja og Inda að taka lagið ;) algjörir töffara með bara geggjaða húfu ;)

img427/9066/p30600188lp.jpg

Í öðru sæti voru stelpur frá Húsavík með lagið "slipped away" (avril lavigne) og sigurvegararnir voru þau systkyn Gunnar og Arna Bó ;) en þau voru með lagið "What if" með Coldplay. Gunnar söng og Arna spilaði á píanó ;) ótrúlega flott hjá þeim:D

img230/816/p30600773mf.jpg

Þá er komið að framhaldsskólanum. En þar var einnig auðvitað veitt verðlaun fyrir 1 - 3 sæti. og í þriðja sæti voru þær Kristín Lea sem song lagið "Weak" og Soffía dansaði við það lag. Ég er ekki með neina mynd af þeim :P en þær stóðu sig með prýði :)

Í öðru sæti voru þær Arna Benný, Fanney Vala og Sigrún Gyða með lagið "I Will Survive" (Gloria Gaynor) Það var ekkert smá flott showið hjá þeim og svo syngja þær líka ótrúlega vel, þannig þær áttu þetta sko skilið :D

Sigurvegari kvöldsins var hann Ingvar með lag sem heitir " Fake Plastic Trees", óska honum til hamingju og vonandi á hann eftir að standa sig vel þegar kemur að keppninni sjálfri ;) eða söngvakeppni framhaldsskólanna sem verður haldin einhverntíma ;)

img204/2852/p30601218vr.jpg

Svona var þetta nú... vó þetta er ekkert smá cool mar ;) gat sett myndir og læti, nú verður þetta líka ekkert smá langt :P hehe ég nenni ekki að blogga um neitt meir, þannig ég læt þetta bara duga með tónkvíslina:D

Svo þarf náttla að taka til :)

img218/4413/p30701281os.jpg

Sumar myndirnar eru ekkert í bestu gæðunum :$ en það sleppur alveg ;) hehe

Það eru svo fleiri myndir hér til hliðar þar sem stendur Tónkvísl 2006

en þetta er komið fínt

--Bryndís


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 22:06:50 / bryndis

Haukadruslur bikarmeistarar 2006 :D:D

Komin tími á smá blogg ;) Það var löng helgi í skólanum núna síðustu helgi þannig mar var í fríi frá fimmtudegi til þriðjudags. Það var bara mjög fínt, var bara heim að slappa af. Var að vinna reyndar á fimmtudag og föstudag en það er bara gaman :D Á laugardaginn var svo horft á handbolta í sjónvarpinu en það voru bikarleikirnir og voru Haukar að keppa bæði í kvenna og karla. Þetta voru báðir hörkuleikir enda góð lið þar á ferð Haukar - ÍBV í kvenna og Haukar - Stjarnan í karla. Haukastelpur höfðu betur og urðu bikarmeistarar :D:D Hanna stóð sig eins og hetja og skoraði ekki meira né minna en 14 mörk ekkert smá flott sérstaklega þar sem þetta var bikarleikur, þær voru svo bara allar að standa sig vel og áttu þetta fullkomlega skilið :):* Strákarnir stóðu sig líka ágætlega en því miður hafðist það ekki hjá þeim í þetta skipti. Roland markmaðurinn hjá Stjörnunni var aðeins og erfiður og var að verja aðeins oooff mikið, en svona er þetta. Það kemur svo ekkert annað til greina en Haukar taki hinar dollurnar eða íslandsmeistaratititlana og þá bæði karla og kvenna :D það verður gaman að fylgjast með því, hef fulla trú á því að þau geti þetta. Nóg um handboltann....

Skólinn byrjaði núna í dag..... mar var ekki alveg að nenna að vakna í skólann það er búið að vera sooo gott að sofa út ;) Það er samt ágætt, hitta líka krakkana:D Það styttist í Tónkvíslina sem er söngvakeppnin hér og þetta verður engin smá keppni. Bæði framhaldsskólinn og Grunnskólarnir hér í kring eru að fara að taka þátt. Aleksandra er að keppa fyrir Hafralækjaskóla hlakka ekkert smá til að heyra í henni, vildi nú að Ásdís gæti komist og hlustað, ég bara verð að hlusta og syngja so bara fyrir hana :haha::haha: :) Svo eru líka stelpur úr Stórutjarnaskóla að keppa þær Sigga Árdal, Dagrún og Hjördís ætla að taka lagið :D það verður bara stuð að fylgjast með þessu.

Við stelpurnar erum svo að pæla að skella okkur á Akureyri á föstudaginn, kíkja í bónus og sonna held að það er gott plan :D svo þarf ég eilla að fara að skella mér í klippingu ég held að hárið mitt fari bara að úldna bráðum 8| ;) Önnu Dís langar líka svo í bíó, veit samt ekki hvaða myndir eru í bíó kannski er eitthvað merkilegt þá kannski skellir mar sér :D kemur bara í ljós líka hvort mar á að nenna og sonna.

Ég var að tala við Ásdísi ohh okkur hlakkar so til að fara út :D:D það verður geggjað, ekkert vesen og þannig bara við úti og fullt af skemmtilegu fólki, svo er náttla málið að fara fyrsta kvöldið og bara öll kvöld á Papa Chico. það er bara besti staðurinn :D Ég fer náttla fyrst til Krítar í Maí með krökkunum í skólanum, það verður bara svona smá upphitun fyrir Slóveniju :D hehe.... Þetta verður bara stuð. klára skólann 25 maí förum so út 29 maí og verðum í 2 vikur, svo er bara að vinna og vinna til að fá marga peninga til að fara svo út til Ásdísar, hún fer örugglega í Júli en ég er að pæla að fara í Ágúst og þá eftir 8 ágúst :D því þá er eitt brúðkaup sem mar má nú ekki missa af;) Ég held þetta sé gott plan og vera þá út í 2 mán eða jafnvel fram í febrúar, svo eftir það þá er málið að halda áfram í skóla:P það er bara spurning hvort mar ætti að fara á Laugarvatn eð íþróttaakademíuna á Reykjanesi, bæði mjög freistandi. mar hefur nú nógan tíma til að hugsa málið ;)

en jæja ég ætla að fara að hætta þessu til að Jóhanna geti lesið ;) hehe.... svo henni leiðist nú ekki, alltaf gaman að lesa bullið í öðru fólki... :D

--Bryndis--


Alltaf gott að setja sér einhver markmið ;) hehe Grettir er töffari

» 6 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 13:02:27 / bryndis

próf :/

Prófin byrjuðu í gær og fór ég þá í tvo próf íslensku og félagsfræði. íslenska var fín en félagsfræði er bara asnalegt, það kemur bara allt í ljós hvernig það fer ;) hehe en ég var í næringarfræði prófi í morgun sem gekk bara vel :) Anna Dís og Jóhanna Elín fóru heim í gær og skildu mig bara ettir :S enda þurftu þær bara að fara í eitt próf en ég 4 próf :evil: fór aðeins heim í gær og gerðum við okkur pizzu :D hún var bara fín, það er so verið að breyta öllu heima held að þau heima eru bara alveg að missa sig skohh :P það er nýbúið að setja nýja eldhúsinnréttingu og nú er verið að laga baðið, vorum að kaupa eikkern sturtuklefa sem er með nuddi og útvarpi og eitthvað meira, þannig það verður gaman að prufa hvernig það virkar:P er samt ekki alveg að sjá að útvarpið eigi eftir að gera gagn þar sem við eigum heima í sveit og náum engu skemmtilegu útvarp en þá er bara rás 1 málið:$ hehe en ég ætla ekkert að hafa þetta neitt lengra :P ætla að fara að horfa bara á tv og læra svo undir þýskuna í kvöld :D fer so heim á morgun og enginn skóli fyrr en á miðvikudaginn :D snilld --Bryndís--


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan